Á 724. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var lagt er fram minnisblað bæjarstjóra ásamt verkefnislýsingu í fylgiskjali.

Í minnisblaðinu var lagt til að bæjarstjóra verði veitt heimild til að semja við Alta ehf. um aðkomu að greiningu valkosta til þéttingar byggðar í byggðakjörnum Fjallabyggðar.

Afurð verkefnis verði umrædd greining ásamt stefnumótun í þéttingu byggðar og aðgengilegar upplýsingar um möguleika til byggingar innan núverandi byggðar á Siglufirði og í Ólafsfirði á heimasíðu sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkti að heimila bæjarstjóra að semja við Alta ehf.