Slökkviliðsmenn í Slökkviliði Fjallabyggðar drógu fram klippubúnaðinn á mánaðarlegri æfingu slökkviliðsins í vikunni.
Að þessu sinni var hópnum tvískipt og var því æft bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði.
Þannig var hægt að fara hægar í gengum taktísk atriði, hvernig og hvers vegna klippur eru notaðar, hvar og hvenær. Þessi þáttur slökkvistarfsins er eitt af lögbundnum hlutverkum slökkviliða.
Á Siglufirði tóku sjúkraflutningamenn frá HSN þátt í æfingunni en þeir æfðu verkferla þegar ná þarf slösuðum einstaklingum út úr ökutækjum. Unglingadeild björgunarsveitanna hjálpaði til og komu tveir unglingar til að leika ökumann og farþega í ökutæki.
Á meðfylgjandi myndum af facebooksíðu Slökkviliðs Fjallabyggðar má sjá hvað hópurinn er samhentur og öflugur.











Myndir: Slökkvilið Fjallabyggðar



