Fyrr í mánuðinum gerði hret norðan heiða og festi snjó víða á Tröllaskaga. Halldór Gunnar Hálfdansson bóndi á Molastöðum í Fljótum tók þessar stórbrotnu myndir og skrifaði eftirfarandi færslu á facebook.
“Ekki hefði mér dottið í hug að sjá nýfallin snjóflóð eða snjóspýjur 10. júní. Láglendi er orðið snjólaust að mestu en allt að 50 cm. þykkur snjór er í fjöllum. Fyrir ofan Molastaðabæinn fellur bæjarlækurinn í fallegum fossi og við heimilisfólk hér á Molastöðum fylgjumst alltaf með því þegar snjóa leysir og hann verður sýnilegur. Það gerðist 10. maí í ár en í júníhretinu fennti yfir hann aftur sem er einsdæmi tel ég. Einnig vekur athygli að öll lúpína í Austur-Fljótum hefur brotnað og lagst flöt niður í veðrinu sem verður að teljast sjaldgæft líka. En nú er komið besta veður og því ber að fagna”.









