Innritun allra nýnema úr grunnskóla í framhaldsskóla hefur gengið vonum framar og er nú lokið. Með samstilltu átaki framhaldsskóla og yfirvalda hefur tekist að ljúka innritun fyrr en undanfarin ár. 5.131 nýnemar sóttu um innritun í framhaldsskóla í ár eða 554 fleiri en í fyrra.

Nemendur þurfa að velja að minnsta kosti tvo skóla í umsókninni en hafa einnig kost á að velja þrjá. 4.136 nemendur fengu pláss í þeim skóla sem þeir völdu í fyrsta vali, 669 í öðru vali og 204 í þriðja vali. Þá fengu 122 nemendur úthlutað plássi í skóla sem þeir völdu ekki sérstaklega en sem er með laus pláss. Það er minna hlutfall en undanfarin ár en í ár var í fyrsta sinn gefinn kostur á að velja þrjá skóla í stað tveggja.

Búið er að taka í notkun nýja innritunargátt á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu í samstarfi við Stafrænt Ísland. Hún hefur bætt þjónustu við umsækjendur og öryggi í umsóknarferlinu til muna.

Mynd/aðsend