Kristín María Hlökk, leikskólastjóri, mætti á 158. fund fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar og kynnti fyrirhugaða könnun sem ráðist verður í vegna breytinga á opnunartíma og leikskólagjöldum leikskólans.
Könnunin fer fram í mars og nær til foreldra, fyrirtækja og stofnana.
Ráðgjafarfyrirtækið Ásgarður mun annast framkvæmd hennar og var haldinn samráðsfundur með fyrirtækinu 27. febrúar. Þá verður Skólapúls lagður fyrir starfsfólk í mars.
Fram kom að vel hefði gengið með eldri börnin í aðstöðunni í húsnæði UÍF og að þau væru mjög ánægð þar.
Á fundinum fór sviðsstjóri jafnframt yfir stöðu fyrirhugaðrar viðbyggingar við Leikhóla. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 7. apríl.
Tveir leikskólar eru í Fjallabyggð, Leikskólinn Leikskálar er á Siglufirði og Leikskólinn Leikhólar er í Ólafsfirði.



