Rætt um fyrirkomulag betri vinnutíma í Leikskóla Fjallabyggðar á 144. fundi fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar.

Betri vinnutími, 36 klukkustunda vinnuvika tekur gildi 1. nóvember nk. samkvæmt grein 2.1.1 í kjarasamningum við Starfsgreinasambandið og BSRB bæjarstarfsmannafélög.

Útfæra þarf framkvæmd þessa og sátu Kristín María H. Karlsdóttir skólastjóri Leikskóla Fjallabyggðar og Sigurbjörg Steinsdóttir fulltrúi starfsmanna undir þessum dagskrárlið.