Sundlaugar Fjallabyggðar verða opnaðar í dag, fimmtudaginn 10. desember. Gestir eru beðnir um að virða tveggja metra regluna í afgreiðslu og í búningsklefum og velja skápa og snaga eftir því. Engar hárþurrkur verða í boði á meðan þetta ástand varir.
Stólar – borð – leikföng – kaffi:
Ekki verður boðið upp á kaffi að svo stöddu og stólar og borð fjarlægð sökum smithættu. Sama á við um leikföng. Handakúta er hægt að fá hjá laugarverði og ber að skila þeim aftur til laugarvarðar eftir notkun til sótthreinsunar.
Heitir pottar:
Hámark geta verið 6 fullorðnir í pottinum í einu. Mikilvægt er að virða 2 metra regluna. Einnig er góð regla að vera ekki of lengi til þess að sem flestir geti notið þess að fara í pottinn.
Kalda karið og Sauna:
Kaldakarið er opið sem og saunan með fjöldatakmörkunum.
Ef eitthvað er óljóst þá endilega hafið samband við forstöðumann.