Sveitafélög sýni ábyrgð – ályktun samninganefnar SGS

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands skorar á sveitarfélög landsins að standa undir þeirri ábyrgð sem þau bera vegna kjarasamninga.

SGS krefst þess að sveitarfélögin haldi aftur af kostnaðarhækkunum og hækkunum á  margvíslegum þjónustugjöldum og velti ekki auknum kostnaði yfir á almennt launafólk.

Sjálfvirkar hækkanir á fasteignagjöldum í fjölmörgum sveitarfélögum eru algerlega óásættanlegar og bitna harðast á þeim sem síst skyldi.

Það þurfa allir í samfélaginu að taka höndum saman um að bæta afkomu þeirra lægst launuðu í samfélaginu og tyggja þeim raunverulegar kjarabætur.