Síldarævintýrið á Siglufirði var haldið í 30. skipti um nýliðna helgi og tókst með ágætum.

Bærinn iðaði af lífi og að sögn Guðmundar Óla Sigurðssonar, eins af forsvarsmönnum Síldarævintýris er talið að um 6 – 7 þúsund manns hafi sótt Síldarævintýrið heim.

Á vefsíðu Fjallabyggðar segir “Hátíðin var samsett af stórum og smáum viðburðum vítt og breytt um bæinn og er það áhugafólk um menningu og mannlíf á Siglufirði sem standa fyrir hátíðinni en það eru þeir Þórarinn Hannesson, Guðmundur Óli Sigurðsson og Jóhann K. Jóhannsson. Sveitarfélagið, fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar studdu við hátíðina í ár sem gerði það úr verkum að hún var eins glæsileg og raun bar vitni.

Fjallbyggð færir öllum þeim sem að hátíðinni komu kærar þakkir fyrir vel heppnað Síldarævintýri 2024.”.

Mynd/Síldarævintýrið