Um liðna helgi fór fram Landsbankamót ÍA þar sem iðkendur frá Tennis- og badmintonfélagi Siglufjarðar (TBS) tóku þátt með góðum árangri, þrátt fyrir að veður og færð hefðu sett strik í reikninginn.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að skráning hafi verið góð í upphafi, en alls voru 22 iðkendur skráðir til leiks. „Veður, færð og aðrir viðburðir höfðu mikil áhrif og að endingu tóku 5 iðkendur þátt,“ segir í tilkynningunni. Þrátt fyrir það stóðu keppendur TBS sig með mikilli prýði.

TBS-iðkendur létu til sín taka þrátt fyrir erfiðar aðstæður - Myndir

Marínó Örn náði glæsilegum árangri þegar hann sigraði einliðaleik í flokki U13A. Þá keppti hann einnig í tvenndarleik ásamt Kamillu Maddý og enduðu þau í fjórða sæti í flokki U15-19A. Kamilla lét einnig til sín taka í einliðaleik þar sem hún hafnaði í þriðja sæti í sama flokki.

Í flokki U13B sigruðu Björgvin Bjarkan og Guðrún Ásta í tvenndarleik. Björgvin bætti við öðru sæti í einliðaleik og Guðrún tryggði sér þriðja sætið.

Katrín Una náði fjórða sæti í einliðaleik í U13C og keppti jafnframt í tvenndarleik ásamt Degi frá Aftureldingu, þar sem þau enduðu í þriðja sæti í flokki U13B.

Í tilkynningunni er sérstaklega hrósað fyrir frammistöðu iðkendanna og ljóst að þrátt fyrir fækkun þátttakenda vegna ytri aðstæðna lét TBS-liðið vel að sér kveða á mótinu.

Næsta verkefni hjá ungu iðkendunum er Íslandsmót unglinga sem fram fer dagana 10. til 12. apríl í TBR-húsinu.

Myndir: Facebook / TBS – Tennis og Badmintonfélag Siglufjarðar