Óheimilt verði að mismuna blóðgjöfum
Heilbrigðisráðherra hefur sett drög að breytingu á reglugerð um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs og viðauka IV við sömu reglugerð í Samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.
Breytingin hefur í för með sér að því er bætt inn í reglugerðina að það sé óheimilt að mismuna blóðgjöfum á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða, svo sem kyns, kynhneigðar, uppruna eða stöðu að öðru leyti.
Breytingin felur jafnframt í sér að kynhegðun veldur ekki lengur varanlegri frávísun blóðgjafar. Í staðinn er kveðið á um að blóðgjafi megi ekki hafa stundað áhættusamt kynlíf í fjóra mánuði fyrir blóðgjöf. Lögð er til skilgreining á því hvað telst vera áhættusamt kynlíf en í því felst að það sé kynlíf sem eykur verulegalíkur á að alvarlegir smitsjúkdómar berist með blóði.
Drögin verða í Samráðsgátt stjórnvalda í tvær vikur.