Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á nýrri reglugerð á facebook síðu sinni um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sem tekur gildi 1.maí næstkomandi. Í henni felast verulegar hækkanir á sektum og má sem nefna hér nokkur dæmi:

Ekið á 115 km/klst 80.000 kr.
Ekið á 125 km/klst 115.000 kr.
Ekið á 135 km/klst 150.000 kr.

Farsími notaður án handfrjáls búnaðar 40.000 kr.
Ekið án þess að endurnýja ökuskírteini 20.000 kr.
Ökuskírteini ekki meðferðis 10.000 kr.
Öryggisbelti ekki notað 20.000 kr.
Og svo framvegis.

Það er eitt sem er alveg öruggt og það er að það er skynsamlegra að setja peningana í eitthvað annað en að brjóta umferðarlögin. Komum heil heim !!
Reglugerðin er hér á vef Samgöngustofu

Frétt: tekin af facebook síðu Lögreglunar á Norðurlandi vestra
Mynd: Fengin af vef