Down & Out gefur út sína fyrstu breiðskífu – söfnun á Karolinafund lýkur á mánudaginn
Dúettinn Down & Out hyggst gefa út plötu sem hlotið hefur nafnið „Þættir af einkennilegum mönnum“. Verður hún fáanleg í þrennskonar formötum, sem vínyll, kasetta og á streymisveitum.
Föstudaginn 22. október næstkomandi kemur út á streymisveitum platan Þættir af einkennilegum mönnum. Á bak við hana stendur dúettinn Down & Out, sem var stofnaður af tveimur Húsvíkingum, Ármanni Guðmundssyni og Þorgeiri Tryggvasyni undir lok níunda áratugar síðustu aldar.
Down & Out var ein af lykilsveitum í pönk- og nýbylgjubylgju sem þá reið yfir bæinn, þó sjálf væri hún órafmögnuð með öllu og hljómaði eins og þeir félagar hefðu hlustað of mikið á Spilverk Þjóðanna og misskilið það allt.
Nú, einum þremur áratugum síðar, drifu miðaldra meðlimirnir sig í stúdíó hjá félaga sínum úr Ljótu hálfvitunum, Baldri Ragnarssyni og afraksturinn er þetta verk.
Ætlunin er að koma því líka út á föstu formi, vinyl og kassettu, og er söfnun fyrir þeirri útgáfu að ljúka á Karolina Fund núna um helgina. Þar er hægt að tryggja sér eintök, miða á útgáfutónleika og jafnvel einkakonsert með tvíeykinu, sem óhætt er að lofa að sé einstök upplifun.
FREKARI UPPLÝSINGAR:
ÁRMANN GUÐMUNDSSON 864 4880
ÞORGEIR TRYGGVASON 694 7749
BÁÐIR MUNU TAKA ÖLLUM MEÐ STAKRI LJÚFMENNSKU
SLÓÐ SÖFNUNARINNAR – ÞAR ER LÍKA MYNDBAND MEÐ TÓNDÆMI
https://www.karolinafund.com/project/view/3321