Það stefnir í skemmtilegan Þjóðhátíðardag í Húnaþingi vestra á Hvammstanga en búið er að setja saman fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagurinn verður tekinn snemma með dorgveiðikeppni við Norðurbryggju og eru ungir sem aldnir hvattir til að mæta. Kl 2 hefst skrúðganga frá íþróttahúsinu að skólanum þar sem 9. bekkur grunnskólans mun sjá um hátíðarkaffi og grill og andlitsmálning verður í boði samhliða því. Hoppkastali verður á svæðinu og leikir fyrir krakkana. Dagskráin mun enda með tónleikum fyrir eldri borgara á sjúkrastofnuninni en dagskrána í heild má sjá hér að neðan.
Þjóðhátíðardagskrá Húnaþings vestra á Hvammstanga:
10-12:00 – Frítt í sund fyrir alla.
10-11:00 – Dorgveiðikeppni við Norðurbryggju, skráning á staðnum frá 9:30. Börn í fylgd forráðamanna og muna að taka stöngina með.
11:00 – Þjóðhátíðarmessa í Staðarbakkakirkju með söngfólki úr kórum héraðsins. Organisti er Pálína F. Skúladóttir og prestur Sr. Guðni Þór Ólafsson. Á eftir verður kaffi undir kirkjuvegg í boði staðarfólks og eru gestir hvattir til að viðra þjóðbúninginn.
14-16:00 – Skrúðganga, leidd af söngfólki héraðsins frá íþróttarhúsi að grunnskólanum á Hvammstanga með viðkomu á sjúkrastofnuninni. Hátíðarræða og fjallkona við grunnskólann. 9. bekkur verður með hátíðarkaffi og grillsölu sem og öðrum hátíðarvarningi. Hoppkastali og sprell fyrir börnin og nýbúarnir frá Sýrlandi verða með kynningu á sér og sinni menningu.
16-17:00 – Ingimar Oddsson flytur hjartnæmustu lög 20. aldar fyrir eldri-borgara á sjúkrastofnun Hvammstanga.
Krakkar eru hvattir til að grafa upp íslenska fánann heima eða föndra.