Tvö störf voru auglýst til umsóknar hjá Fjallabyggð og sá Mögnum ráðningaþjónusta um umsóknarferli, mat á umsóknum og viðtöl.

6 umsækjendur voru um starf skrifstofustjóra. Að undangengnum viðtölum og mati á umsækjendum mælir Mögnum með ráðningu á Þóri Hákonarsyni bæjarstjóra í starfið.

Bæjarráð samþykkti að fara að tillögu ráðningarþjónustu Mögnum og felur formanni bæjarráðs að ganga til samninga við Þóri Hákonarson bæjarstjóra í starf skrifstofustjóra Fjallabyggðar og leggja fyrir bæjarstjórn.