Þegar tvær sjávarbyggðir urðu að einni – Félagsleg og efnahagsleg þróun á Siglufirði og Ólafsfirði eftir sameiningu og göng
Málstofan fór fram í Háskólanum á Akureyri á dögunum og flutti Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild erindið.
Sjá erindið: HÉR
Grétar kynnti niðurstöður úr norrænni rannsókn á aðlögunarhæfni strandbyggða á Vestur-Norðurlöndum og Norður-Noregi í verkefninu NORVALUE: Value Chains and Resilient Coastal Communities in the Nordic Atlantic.
Í rannsókninni voru byggðir á Íslandi skoðaðar, þar á meðal Siglufjörður og Ólafsfjörður, sem sameinuðust í Fjallabyggð árið 2006. Verkefnið leggur áherslu á félags- og efnahagsleg áhrif sameiningarinnar, opnun Héðinsfjarðarganga, og þær breytingar sem fylgdu í menntun, ferðaþjónustu og þekkingariðnaði.