Laugardaginn 29. júlí verður efnt til tiltektarátaks á Dalvík.
Gámasvæðið verður opið lengur og sorpförgun frá íbúðarhúsnæði verður gjaldfrjáls þann dag.
Nánari upplýsingar um opnunartíma verða auglýstar síðar á vefsíðu Dalvíkurbyggðar.
Allir íbúar eru hvattir til að taka þátt, margt smátt gerir eitt stórt.