Tinna Hjaltadóttir og Steingrímur Árni Jónsson nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar voru fulltrúar Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fór í Brussel 23. maí síðastliðinn.

Ísland hafnaði í öðru sæti af Norðurlöndunum á eftir Svíþjóð og voru í miðjunni af þeim 30 löndum sem tóku þátt.

Sigurvegari keppninnar var lið Ítalíu. Yfir 73.000 nemendur í um 3000 grunnskólum í 30 löndum Evrópu tóku þátt í undankeppnum heima fyrir og þar af hátt í 2.000 nemendur í 60 skólum hér á landi þar sem Grunnskóli Fjallabyggðar bar sigur úr bítum.

Keppendur frá Íslandi voru því hlutfallslega mun fleiri en almennt innan Evrópu. Fulltrúar sigurskólanna í hverju landi komu síðan saman til Brussel í Evrópukeppnina.

Tinna og Steingrímur voru glæsilegir fulltrúar Íslands segir á facebooksíðu Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu

Myndir/Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu