Þátturinn Tíu Dropar verður á dagskrá FM Trölla í dag kl 13.00 – 15.00

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjóns og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.

Í þættinum verður gefin vegleg gjöf frá Primex sem heppinn hlustandi getur fengið með því að hringja inn í þáttinn á réttum tíma.

 

Hér má sjá fyrstu vörurnar í nýju “Natural beauty” línunni frá Primex

Varan er unnin úr náttúrulegum efnum, m.a. kítósan, sem er virka efnið. Hugvit og þróun vörunnar kemur frá Primex. Núna voru kynntar tvær nýjar vörur í ChitoCare línunni, sem kallast Body Scrub og Body Lotion.

Fleiri vörur eru í þróun hjá Primex og er stefnt að því að koma fram með andlitsvörur í sömu línu á næsta ári. Þessar vörur eru framhald af ChitoCare sáraspreyi og sárageli sem margir þekkja, og hafa dugað vel til að græða ýmis sár og húðkvilla.

 

Liposan fæðubótarefnið frá Primex

Primex framleiðir líka Liposan línu, sem er fæðubótarefni, og er von á fleiri vörum í þeirri línu einnig. Allt frá árinu 2001 hefur það verið selt sem hráefni til annarra framleiðenda svo sem Herbalife, Nowfoods og fleiri aðila. Fæðubótarefnið inniheldur m.a. trefjar, og er „jákvætt hlaðið“ sem binst við „neikvætt hlaðið“ efni eins og til dæmis fitu og eiturefni, sem hjálpar meltingunni til að losa sig við neikvæðu efnin. Íþróttafólk notar vöruna mikið til að bæta þarmaflóruna og fá meira úthald.

Með þessu er Primex að fara meira út í að selja neytendavöru, en var áður mest að selja hráefni til annarra framleiðenda.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla í dag kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

 

Kristín og Gunnar Smári

 

 

Tröllahjónin