Það er sérstakt ánægjuefni fyrir New Hampshire Friendship Chorus að koma fram á Ólafsfirði og er það hluti af 18. alþjóðlegri tónleikaferð kórsins árið 2022.

Tónleikarnir verða haldnir í Menningarhúsinu Tjarnarborg fimmtudaginn 7. júlí kl 18:00. Allir velkomnir.

50 kórfélagar munu flytja dagskrá með tónlist eftir Morten Lauridsen, Stephen Sondheim, Erik Esenvalds, Gershwin, Duke Ellington og amerísk þjóðlög og dægurlög. Á efnisskránni er einnig íslensk tónlist og er það táknrænt fyrir tengsl Íslands og Ameríku og hvetur til vináttu og viðurkenningar í heimssamfélaginu.

Kórstjóri New Hampshire Friendship Chorus er dr. Daniel Perkins.

Frá stofnun 1987 hefur Vináttukórinn komið fram um allan heim: í Kína; Nýja Sjálandi og Ástralíu; Rússlandi, Eistlandi og Lettlandi; Grikklandi og Tyrklandi; Ekvador, Perú og Bólivíu; Suður-Afríku; Tékklandi, Póllandi, Ungverjalandi og Austurríki; Suður-Kóreu og Víetnam; Brasilíu; Bosníu og Hersegóvínu, Króatíu, Svartfjallalandi og Slóveníu; Marokkó; Armeníu og Georgíu; Kólumbíu; Kúbu; og Búlgaríu.

Kórferðir eru ekki bara ferðalög, þær styrkja tengsl milli menningarheima.

Það er hefð hjá meðlimum New Hampshire Friendship Chorus að kynna sér svæðið sem þau heimsækja og kynnast fólkinu sem býr þar.