Torgið á Siglufirði hefur nú flutt af Aðalgötu í gula húsið við Rauðkutorg þar sem Hannes Boy var áður til húsa og opnaði Torgið formlega á hinum nýja stað miðvikudaginn 1. júní.

Þar með sameinast Torgið, veitingastaðurinn Sunna á Sigló Hóteli og Rauðka.  Rekstraraðilar veitingadeildar á Siglufirði eru hjónin Halldóra Guðjónsdóttir og Bjarni Rúnar Bequette, hjónin Jimmy Wallster og Sólrún Guðjónsdóttir og hjónin Daníel Pétur Baldursson og Auður Ösp Magnúsdóttir segir á vefsíðunni Veitingageirinn.is.

Opnunartími Torgsins verður nær óbreyttur og verður opið allt árið um kring líkt og verið hefur.

Í hádeginu verður hlaðborð áfram í boði, enda vinsælt hjá Siglfirðingum og verður opið frá klukkan 12 til 15.

Lokað verður yfir daginn frá klukkan 15 til 17 alla virka daga, en opið verður á kvöldin frá klukkan 17 til 21.

Um helgar verður opið frá klukkan 12 til 22.

Rauðka opnaði formlega 1. júní og opnunartími í sumar verður frá klukkan 12 til 21 alla daga.  Matseðillinn á Rauðku er girnilegur og ættaður frá Ítalíu. Þar má sjá nauta carpaccio, Rauðku pizzurnar frægu með t.d. Prosciutto, ferskum mozzarella, mascarpone, vegan pizzu svo fátt eitt sé nefnt og ekki má gleyma Ítalska eftirréttinum Tiramisu sem allir ættu nú að þekkja.

Allir starfsmenn Torgsins flytja með yfir í nýja húsnæðið.

Engar meiriháttar áherslubreytingar verða á matseðli Torgsins, pizzurnar verða á sínum stað og þar á meðal pizzan Siglfirðingur sem og hamborgarnir svo fátt eitt sé nefnt.

Sætafjöldi Torgins mun aukast aðeins. Á gamla staðnum voru sæti fyrir 50 manns, en á þeim nýja eru sæti fyrir 65 manns. Að auki verður boðið upp á setustofu á annarri hæð Torgsins.

Lifandi viðburðir verða í allt sumar að hætti Torgsins og einnig eru gildandi gjafabréf enn í gildi.


Myndir/veitingageirinn.is