Í frétt á heimasíðu TR, kemur fram að nú í sumar verður prufukeyrt verkefni um símaráðgjöf. Einstaklingar geta þá pantað símtal frá þjónustufulltrúa TR sem hringir og veitir ráðgjöf um mál viðkomandi. Árangurinn af verkefninu verður metinn í lok sumars.
Beiðni um ráðggjöf þarf að fylla út á heimasíðu TR, slóðin á formið er hér. Gefa þarf upp símanúmer sem hægt er að ná í viðkomandi, nafn, kennitölu og netfang. Einnig þarf að taka fram um hvað óskað er ráðgjafar.
Í frétt TR er minnt á að í samskiptum starfsfólks TR við viðskiptavini í gegnum síma, þarf að gefa upp leyninúmer, það á líka við í þessu verkefni. Leyninúmer er hægt að nálgast á Mínum síðum TR.
Tryggingastofnun mun svo meta reynsluna af þessu verkefni í sumarlok.
Mynd/ af vefsíðu ÖBI