Hvað ef þú finnur dýr?

Minnispunktar:

  • Leitið að eyrnamerki
  • Látið skanna eftir örmerki
  • Skoðið og póstið mynd á vefsíður Kattholts ef um kött er að ræða
  • Skoðið og póstið mynd á samfélagsmiðla týndir hundar eða kettir

Ef þú finnur gæludýr sem þig grunar sé týnt þá er hægt að kíkja innanvert í eyru og gá hvort dýrið sé eyrnamerkt. Á dyraaudkenni.is er hægt að fletta upp hvort eyrnamerkið sé skráð. Ef dýrið er ekki eyrnamerkt þarf að lesa af með skanna hvort það sé örmerkt. Skylt er að örmerkja og skrá alla hunda, ketti og kanínur frá 12 vikna aldri.
Leitið til dýralækna, dýraeftirlitsmanna sveitarfélagannaKattholts eða lögreglu til að fá dýrið skannað og flett upp í gagnagrunninum. Kattholt er einnig með síðu fyrir týndar kisur með mynd og upplýsingum. Þangað er líka hægt að senda póst með mynd. Annars eru samfélagsmiðlarnir eins og facebook orðnir mjög öflugir til að auglýsa að dýr hafi fundist eða séu týnd. Þar eru eigin síður fyrir slíkt.

Hvað ef dýrið þitt týnist?

Minnispunktar:

  • Skráðu dýrið týnt á Dýraauðkenni og setjið inn mynd
  • Athugið hjá dýraeftirliti sveitarfélaganna, dýralæknum og lögreglu
  • Skoðið og póstið mynd á vefsíður Kattholts ef um kött er að ræða
  • Skoðið og póstið mynd á samfélagsmiðla týndir hundar eða kettir

Ef dýrið þitt er örmerkt og skráð í miðlægan gagnagrunn dyraaudkenni.is kemst það yfirleitt fljótt til skila. Þegar þú hefur skráð þig inn á Dýraauðkenni getur þú sett inn upplýsingar um þitt dýr, svo sem mynd af dýrinu, þitt símanúmer og tölvupóstfang. Ef dýrið týnist getur þú skráð það sem týnt. Ef einhver ætlaði að taka dýrið að sér kemur það t.d. í ljós við skoðun hjá dýralækni að dýrið sé týnt frá skráðum eiganda. 

Leitið til dýralækna, dýraeftirlitsmanna sveitarfélagannaKattholts eða lögreglu til að heyra hvort dýrið hafi komið þangað. Kattholt er einnig með síðu fyrir týndar og fundnar kisur með mynd og upplýsingum. Þangað er líka hægt að senda póst með mynd. Þeir eru einnig með og síðu fyrir kisur sem hafa fundist slasaðar eða dánar. Annars eru samfélagsmiðlarnir eins og facebook orðnir mjög öflugir til að auglýsa að dýr hafi fundist eða séu týnd. Þar eru eigin síður fyrir slíkt.


Skoða á mast.is