Vaðlaheiðargöng eru veggöng undir Vaðlaheiði, milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals. Göngin eru um 7,2 km í bergi milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals og heildarlengd vegskála er 280 m, samtals um 7,5 km. Með göngunum styttist vegalengd milli Akureyrar og Húsavíkur um 16 km og ekki þarf lengur að fara um fjallveginn Víkurskarð þar sem vetrarfærð er oft erfið.
Gjaldtaka í Vaðlaheiðargöngum hófst í gær 2. janúar. Göngin voru opnuð fyrir umferð 21. desember og hafa ökumenn getað ekið gjaldfrjálst í gegnum göngin en þurfa hér eftir að greiða á bilinu 700 til 6.000 krónur fyrir ferðina.
Fullt veggjald fyrir fólksbíl er 1.500 krónur og 6.000 krónur fyrir flutningabíla og rútur. Hægt er að kaupa tíu, 40 eða 100 ferðir í einu og þannig lækkar gjaldið á fólksbíla niður í 1.250, 900 eða 700 krónur.
Hér má sjá klukkutíma langan þátt N4 um Vaðlaheiðargöng, umfjöllun er frá mörgum sjónarhornum og rætt við fjölda fólks. Birt með góðfúslegu leyfi N4.
Nánari upplýsingar um gjaldtökuna má finna í myndskeiðinu hér að neðan.
Forsíðumynd: skjáskot úr myndbandi N4