Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 30. maí að heimila T.ark arkitektum f.h. Samkaupa hf. og KSK eigna ehf. að vinna breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar með það að markmiði að útbúa nýja lóð fyrir verslunarkjarna sem mun m.a. hýsa nýja verslun Samkaupa hf. ásamt öðrum verslunum og/eða þjónustu.

Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar 29. október og kynnt á opnum íbúafundi þann 6. nóv. sl. Athugasemdafrestur er frá og með 13. nóvember 2024 til og með 2. janúar 2025.

Alls bárust skipulagsgátt 32 umsagnir vegna fyrirhugaðrar Samkaupsbyggingar og mun Trölli.is birta allar innsendar umsagnir næstu vikurnar.

Áttunda umsögn birt 10.12.2024.

Kristján Sigurður Elíasson

Geriði það fyrir mig og alla aðra að hætta við þessi áform um verslunarhús á tjaldsvæðinu og eyðileggja um leið einstakt torg í siglfirsku umhverfi.
Útsýnið af torginu suður á báta bryggju á sér engan líka hér á landi og bara þessvegna er ástæða til að fara varlega í að gera beytingar á því.
Að standa við styttuna af Gústa guðsmanni og sjá ekki suður í bátadokk fyrir mammonsmusterum er eitthvað svo óhugsandi. Hættið við þessa helvítis vitleysu.

Forsíðumynd/úr myndasafni Trölla.is