Fyrir lágu drög að samkomulagi við Golfklúbb Fjallabyggðar (GFB) á 901. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar um ráðstöfun fjármuna sem áður var búið að samþykkja í uppbyggingu bílastæðis og golfskála í Skeggjabrekkudal á árinu 2025.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag við Golfklúbb Fjallabyggðar um ráðstöfun fjármuna sem búið var að samþykkja í fjárhagsáætlun 2025 og felur bæjarstjóra að ganga frá undirritun.




