Í dag fór upplýsingavefur samstarfsnefndar um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra í loftið á léninu https://dalhun.is. Á honum er að finna ýmsar upplýsingar um sameiningarviðræðurnar og íbúakosningar um sameiningartillöguna, auk frétta af viðræðum og viðburðum. Á síðunni er einnig að finna svör við spurningum sem algengt er að íbúar velti upp í tengslum við sameiningarviðræður og eyðublað fyrir nýjar fyrirspurnir ef lesendur finna ekki svarið á síðunni.
Hægt verður að nálgast allt kynningarefni um sameiningarviðræðurnar á vefnum, m.a. glærur og upptökur frá íbúafundum, fundargerðir og fleira.
