56 keppendur voru skráðir til leiks í Sigló Open 31. júlí, en 3 þeirra mættu ekki og voru keppendur 53 talsins.
Rjóma blíða var á vellinum allan daginn og völlurinn í topp standi, keppendur mjög ánægðir með daginn og mótið.
Keppt var í punktakeppni með forgjöf í karla og kvennaflokki og 1 sæti í höggleik.
Karlaflokkur í punktakeppni:
- Þorsteinn Jóhannsson – 37 punktar
- Ólafur Þór Ólafsson – 36 punktar
- Guðjón Marinó Ólafsson – 35 punktar
Kvennaflokkur í punktakeppni:
- Jana Ebenezersdóttir – 38 punktar
- Jóhanna Þorleifsdóttir – 34 punktar
- Hulda Guðveig Magnúsdóttir – 31 punktur
Höggleikur:
- Jóhann Már Sigurbjörnsson – 75 högg
Lengsta teighögg karla: Jóhann Már Sigurbjörnsson
Lengsta teighögg kvenna: Fanný Bjarnadóttir
Næstur holu: Þórhallur Axel, Anton Ingi Þorsteinsson, Þorgeir Ver
Í restina var síðan dregið úr nokkrum skorkortum og nokkrir heppnir fengu vinninga.
Myndir/Golfklúbbur Siglufjarðar