Veðurstofan varar við talsverðri eða mikilli rigningu, úrkomumest verður á Ströndum og Tröllaskaga. Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Fólk er hvatt til þess að sýna aðgát.
Vegna mikillar úrkomu er varað við mögulegum ofanflóðum á veginn um Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarveg.
Þar er möguleiki á grjóthruni, skriðum og krapaflóðum. Vegfarendur eru beðnir um að fara um með gát.
Grjóthrun varð á Siglufjarðavegi í gærkvöldi.