Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af Gulcan kryddum vegna vanmerkinga vegna tungumáls og ofnæmisvalda ( sinnep og sesam) sem fyrirtækið Istanbul market flytur inn og selur í verslun sinni. Fyritækið í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað vörurnar og sent út fréttatilkynningu.

innköllunin á við um allar framleiðslulotur og best fyrir dagsetningar:

  • Vörumerki: Gulcan
  • Vöruheiti: Grill/Mangal Baharati (Grill/BBQ Wurzsalz, Grill/BBQ Kruiden)
  • Geymsluþol: Allar best fyrir dagsetningar
  • Lotunúmer: Allar lotur
  • Strikamerki: 8717552025680
  • Nettómagn: 150 g
  • Upprunaland: Þýskaland

  • Vörumerki: Gulcan
  • Vöruheiti: Arjantin Mix
  • Geymsluþol: Allar best fyrir dagsetningar
  • Lotunúmer: Allar lotur
  • Strikamerki: 8717552025888
  • Nettómagn: 150 g
  • Upprunaland: Þýskaland

Neytendum sem keypt hafa þessar vörur eru beðin að neyta þeirra ekki og geta skilað þeim gegn endurgreiðslu til verslunarinnar. Vörurnar eru skaðlausar  fyrir þá sem hafa ekki ofnæmi fyrir sesam eða sinnepi. Nánari upplýsingar er hægt að fá á netfanginu istanbulmarket.is@gmail.com.