Veikist starfsmaður eða slasast í orlofi telst sá tími, sem veikindum nemur, ekki til orlofs enda sanni starfsmaður með læknisvottorði að hann geti ekki notið orlofsins.

Þegar veikindi hefjast ber starfsmanni að tilkynna það á vinnustað með sannanlegum hætti, sama hvar hann er staddur í veröldinni, eins og hann væri í vinnu. Þá getur hann tekið orlofið síðar, eftir að hann hefur náð heilsu á ný, með samkomulagi við yfirmann sinn.

Sjá nánar hér