Lagt er fram minnisblað deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála á 716. fundi Bæjarráðs Fjallabyggðar.

Í minnisblaðinu leggur deildarstjóri til við bæjarráð að öllum tilboðum sem bárust í ræstingu í Leikskóla Fjallabyggðar, Leikhóla 2021-2024, sem opnuð voru þann 11. október sl., og kynnt á fundi bæjarráðs þann 14. október sl., verði hafnað og útboð í verkið auglýst að nýju.

Tillaga um höfnun tilboða byggir á því að í ljós hefur komið að ágalli var á framkvæmd útboðsins.

Fyrir liggur að virði umrædds ræstingarsamnings, með mögulegri framlengingu um tvö ár, er mun meira en viðmiðunarfjárhæð útboðsskyldu samkvæmt ákvæðum laga um opinber innkaup og bar því að auglýsa útboðið á landsvísu á útboðsvef, samanber ákvæði reglugerðar nr. 1313/2020.

Einnig er lagt fram minnisblað lögmanns sveitarfélagsins dags. 25. október.

Bæjarráð samþykkir að hafna öllum tilboðum í ræstingu í Leikskóla Fjallabyggðar, Leikhóla.

Einnig samþykkir bæjarráð að fela deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að hefja undirbúning nýs útboðs vegna ræstinga í leikskólum Fjallabyggðar á þeim forsendum sem fram koma í framlögðu minnisblaði.