Í dag, föstudaginn 22. desember 2023 eru vetr­ar­sól­stöður.

Dag­inn fer að lengja strax á morg­un, þá um ör­fá­ar sek­únd­ur og svo hraðar eft­ir það. Norðan­lands er birtu­tími um klukku­stund skemmri en syðra.

Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar hann er stystur.

Breytileiki dagsetninganna stafar fyrst og fremst af hlaupársdögum. Nafnið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, það er hættir að hækka eða lækka á lofti.

Heimild: Wikipedia og Veðurstofa Íslands

Vetrarsólstöður

  • 2023 – 22. Desember – kl. 03:27
  • 2024 – 21. Desember – kl. 09:20
  • 2025 – 21. Desember – kl. 15:03