Mjög slæmar aðstæður með þæfingsfærð, skafrenning og lélegu skyggni er fyrir norðan og er það ekki færi fyrir eindrifsbíla.

Holtavörðuheiði er LOKUÐ vegna ófærðar og ólíklegt er að vegurinn opni í dag.

Þverárfjallsvegur og Öxnadalsheiði eru ófær. Báðum vegum hefur verið LOKAÐ og munu ekki opna í dag.

Þungfært og skafrenningur er í Héðinsfirði. Þæfingsfærð, hálka eða krapi er víða á öðrum leiðum.