Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Heima súkkulaðibitakökum sem Aðföng selur vegna aðskotahluts sem fannst í vörunni (vír). Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna.

Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu.

  • Vörumerki: Heima
  • Vöruheiti: Súkkulaðibitakökur
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 19-01-2024
  • Nettómagn: 650 g
  • Strikamerki: 5690350055468 Framleiðsluland: Ísland
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Bónuss og Hagkaupa um land allt

Neytendur eiga ekki að neyta en farga eða fara með kökurnar til næstu verslunar til að fá endurgreitt.