Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 243,5 stig í júní 2023 (janúar 2011=100) og hækkaði um 1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 3,2% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 11,2%.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu byggir á þinglýstum leigusamningum. Hafa verður í huga að aðeins litlum hluta leigusamninga er þinglýst og því ekki víst að úrtakið gefi rétta mynd af þróun leiguverðs.

Með breytingum á húsaleigulögum um áramótin var HMS falið að halda utan um rafræna skráningu leigusamninga. Er slík skráning nú forsenda þess að fá húsnæðisbætur, en áður var þinglýsingar leigusamnings að jafnaði krafist. Þinglýstum leigusamningum hefur því fækkað töluvert og þar með er enn meira hætta á að vísitala byggð á þinglýstum samningum gefi ekki rétta mynd af verðþróun líkt og HMS hefur bent á síðustu mánuði. Til að mynda byggði leiguvísitalan að meðaltali á 428 nýjum leigusamningum á mánuði árið 2022. Samningarnir voru 203 í maí 2023 og 196 nú í júní.