Hlutfall nemenda sem segjast hafa komið með hníf í skóla lækkaði úr 3% í 1% í 8. bekk á milli áranna 2024 og 2025. Á sama tíma líður fleiri börnum vel í skóla og fleiri hafa traustan fullorðinn til að leita til. Þá hefur kynferðis- og heimilisofbeldi gegn börnum farið minnkandi.
Árið 2024 vöktu alvarleg ofbeldismál þar sem börn komu við sögu mikla athygli og áhyggjur almennings. Ný stöðuskýrsla aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum sýnir jákvæða þróun á ýmsum sviðum og um leið nýjar áskoranir.
Jákvæð þróun samkvæmt mælingum
Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2025, gögn lögreglu og barnaverndarþjónustu sýna að
- vopnaburður í skólum lækkaði úr 3% í 1% í 8. bekk (ÍÆ 2025),
- málshraði ungmennamála hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu styttist úr 197 dögum (2022) í 82 daga (2025) (LRH 2025),
- það dró úr kynferðisofbeldi og heimilisofbeldi milli ára (ÍÆ 2025) og
- fleiri börnum líður vel í skóla en áður (ÍÆ 2025).
Biðlistar eftir meðferðarúrræðum Barna- og fjölskyldustofu hafa styst verulega og í lok árs 2025 var lítið um börn á bið, að Barnahúsi undanskildu.
Áskoranir framundan
Á sama tíma sýna mælingar að einelti hefur aukist í 6. bekk, úr 10% í 13%, og líkamsárásir hafa einnig aukist meðal yngstu barnanna, sérstaklega drengja. Stafrænt ofbeldi og netöfgahópar eru vaxandi áhyggjuefni sem kalla á ný viðbrögð. Brýnt er að efla fræðslu og tryggja að lagarammi haldi í við hraðar tæknibreytingar.
Samstarf að baki tölunum
Samfélagslögreglumenn starfa nú hjá nær öllum lögregluembættum og svæðisbundið samráð er komið formlega á í öllum níu lögregluumdæmum. Stuðningur við skóla hefur verið efldur, m.a. með verkefnunum Heillaspor, Föruneyti barna, MEMM og Landsteymi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Flotinn, flakkandi félagsmiðstöð, nær til 35–150 ungmenna á hverri vakt og nálgast öll ungmenni sem þau hitta hvort sem það eru þung mál er varðar áhættuhegðun eða hóp unglinga við leik – til að byggja upp traust og vera til staðar áður en eitthvað fer úrskeiðis.
Af 25 aðgerðum í aðgerðaáætluninni eru nú þremur lokið, 15 í virkri framkvæmd, fimm í undirbúningi og tvær í innleiðingu.
Mikilvægir áfangar fram undan
Meðferðarheimilið að Gunnarsholti opnar brátt á ný í nýju húsnæði eftir lokun vegna myglu, sem mun styrkja úrræði fyrir börn sem þurfa langtímameðferð. Verklag fyrir skóla vegna alvarlegra ofbeldisatvika verður tilbúið á vormánuðum. Tilraunaverkefni um skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum hefst á fyrri hluta árs 2026 og frumvarp um endurskoðuð barnaverndarlög verður lagt fram á vorþingi.
Um aðgerðahópinn
Aðgerðahópi stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem mennta- og barnamálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið kynntu sumarið 2024 og aðgerðum heilbrigðisráðuneytisins er lúta að heilbrigði og vellíðan barna. Í september sama ár var ákveðið að fjölga aðgerðum og auka fjármagn til þeirra.
Með aðgerðunum er ætlunin að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf, styrkja úrræði og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi. Um er að ræða tveggja ára verkefni til þess að innleiða aðgerðirnar með reglubundinni eftirfylgni og árangursmælingum.
Stöðuskýrsla
Unnið hefur verið að heildstæðri aðgerðaáætlun til tveggja ára (2025-2026). Aðgerðahópurinn með fulltrúum ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga ber ábyrgð á framkvæmd áætlunarinnar og eftirfylgni. Hann birtir mat á stöðu og framvindu aðgerða á þriggja mánaða fresti.

