1. maí dagskrá var haldin í sal stéttafélaganna, að Eyragötu 24.b á Siglufirði í dag.
Margrét Jónsdóttir flutti ávarp 1. maí nefndar stéttafélaganna af mikill röggsemi við góðar undirtektir gesta. Þar rakti hún m.a. sögu kjarabaráttunnar og minnti á það helsta sem baráttan hefur skilað, og að henni lýkur í raun aldrei. Einnig var farið yfir baráttumál aldraðra og öryrkja.
Að loknu ávarpi fengu gestir sér girnilegar kaffiveitingar, sem runnu ljúflega niður.
Kjörorð dagsins voru “Sterkari saman” og fengu allir gestir 1. maí merki, með þeirri áletrun, í barminn þegar þeir gengu í salinn, og skrifuðu svo í gestabók að fundi loknum.
Húsfyllir var og stemmingin góð.
Texti: Gunnar Smári Helgason
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir