Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2021.

Tölur Þjóðskrár segja að 11,3 % íbúa Dalvíkurbyggðar eru erlendir ríkisborgarar, alls 211 manns.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 44% niður í 1%  þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

MEIRIHLUTI ÍBÚA MÝRDALSHREPPS ERU ERLENDIR RÍKISBORGARAR

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Mýrdalshreppi. Alls eru  51,0% íbúa sveitarfélagsins með erlent ríkisfang. Þann 1. desember sl. voru 412 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu í Mýrdalshreppi af alls 808 íbúum hreppsins.
Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 34,5% og Súðavíkurhreppi með 32,4% íbúa.
Þess má geta að þau sveitarfélög sem er með lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang eru Skorradalshreppur og Skagabyggð með 3,3% íbúa.

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum með 23,5% íbúa og Vestfirðir koma næst með 19,0% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi eystra með 8,6%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2021.