25 ára afmælistónleikar Karlakórs Fjallabyggðar verða sunnudaginn 27. apríl kl. 16:00 í Siglufjarðarkirkju.

Fagnað verður 25 ára afmæli Karlakórs Fjallabyggðar með veglegum tónleikum þar sem flutt verða valin lög úr efnisskrá kórsins síðustu 25 ár.

Fram koma:

Karlakór Fjallabyggðar ásamt hljómsveit
Gestasöngvari: Tinna Hjaltadóttir

Hljómsveit:

Píanó – Elías Þorvaldsson

Gítar – Guðmann Sveinsson

Bassi – Mikael Sigurðsson

Trommur – Rodrigo Lopes

Stjórnandi: Edda Björk Jónsdóttir

Miðaverð: 5.000 kr.

Athugið: Enginn posi á staðnum