Fjallabyggð hefur Í samvinnu við Landhelgisgæsluna farið í að hreinsa upp gömul dekk sem farið hafa í sjóinn við Óskarsbryggju á Siglufirði.
Tveir kafarar Gæslunnar hreinsuðu upp um 40 dekk sem í áranna rás hafa trosnað við bryggjuna, losnað og sokkið til botns.
Fjallabyggð þakkar Landhelgisgæslunni kærlega fyrir þetta þrekvirki.
Mynd/Fjallabyggð