Af þeim 4.870 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í þjóðskrá árið 2023 gengu 43% í hjúskap hjá Sýslumönnum, 33,9% hjá Þjóðkirkjunni, 12% hjá öðrum trú- og lífsskoðunarfélögum og 11% erlendis.
Fjöldi og samanburður við árið á undan
Tegund | 2023 | 2022 | Breyting |
Þjóðkirkjan | 1.650 | 1.735 | |
Sýslumaður | 2.095 | 1.542 | |
Önnur trú- og lífsskoðunarfélög | 588 | 649 | |
Erlendis | 537 | 874 | |
Samtals: | 4.870 | 4.800 |
---|
Samanburður milli landshluta
Þegar horft er á samanburð milli landshluta má sjá að miðað við hverja 1000 íbúa gengu flestir íbúar Austurlands í hjúskap á árinu 2023, þar á eftir íbúar Norðurlands vestra og loks íbúar Norðurlands eystra.
Þróun eftir árum
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá. Einstaklingur getur gengið í hjúskap með öðrum einstaklingi sem er ekki með kennitölu í Þjóðskrá og telur þá sá einstaklingur ekki með í tölfræðinni.
Mynd/pixabay