Í dag kl. 13:00 er þátturinn Tíu Dropar á FM Trölla í beinni útsendingu frá Kanaríeyjum.

Það eru “Tröllahjónin” Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum frá bænum Vecindario á Gran Canaria.

Leikin verða splunkuný íslensk lög úr ýmsum áttum, spjallað um heima og geima, kíkt á fréttir vikunnar á trölli.is auk þess sem uppskrift vikunnar verður á sínum stað. Leitast verður við að fylgja því sem segir í stiklunni: “heimilislegur og svolítið skemmtilegur þáttur”.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13:00 – 15:00.
FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is