Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar, Við töpum öll á einsleitninni – Jafnrétti er ákvörðun, sem var haldin 12. október 2023, voru  afhentar viðurkenningar Jafnvægisvogarinnar, hreyfiafls FKA – Félags kvenna í atvinnulífinu, til 56 fyrirtækja, 11 sveitarfélaga og 22 opinberra aðila. Fjallabyggð er þar á meðal og er það annað árið í röð sem Fjallabyggð hlýtur þann heiður.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á vegum FKA – Félags kvenna í atvinnulífinu og miðar verkefnið að því að jafna hlutföll kynjanna í framkvæmdastjórnum fyrirtækja og stofnana. Meðal markmiða Jafnvægisvogarinnar er að hlutföll kynjanna í framkvæmdastjórnum fyrirtækja verði orðin 40/60 árið 2027, að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir og draga fram í sviðljósið fyrirtæki og stofnanir sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar.

Jafnvægisvogina fá þau fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum. Að þessari viðurkenningu, sem Eliza Reid afhenti standa auk FKA forsætisráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, PiparTBWA, Ríkisútvarpið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við mat á þeim sem hlutu viðurkenninguna.

Þátttakendur í Jafnvægisvoginni eru 239 talsins.

Fréttatilkynning Jafnvægisvogarinnar 2023