Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Húnabyggð, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Borealis Data Center hafa gert með sér viljayfirlýsingu um samstarfsverkefni sem stuðlar að nýtingu á glatvarma í Húnabyggð. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfesti viljayfirlýsinguna í dag, en hún felur í sér að glatvarmi frá  gagnaveri Borealis Data Center í Húnabyggð verður nýttur í græna atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Markmið stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og markmið um kolefnishlutleysi og full orkuskipti kallar á skýra sýn og nýja nálgun sem mun byggja á markmiðum fyrir einstakar greinar atvinnulífsins, aukna áherslu á loftslagshagstjórn og forgangsröðun í þágu loftslagsmarkmiða á öllum sviðum samfélagsins. Til að þessum markmiðum verði náð er mikilvægt að tryggja samstarf ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Íslensk stjórnvöld hafa sett sér metnaðarfull markmið í loftslags- og orkumálum. Til að orkuþörf okkar verði mætt þurfum við að leita ýmissa leiða, meðal annars til bættrar orkunýtingar. Glatvarmi er ein þessara leiða sem við eigum að horfa til í auknum mæli og hlakka ég til að fylgjast með þeirri grænu atvinnuuppbyggingu sem á eftir að verða í Húnabyggð á komandi árum.“

Samtök sveitarfélag á Norðurlandi vestra munu halda utan um verkefnisstjórn verkefnisins.

Forsíðumynd/Frá vinstri: Pétur Arason sveitarstjóri Húnabyggðar, Katrín M. Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Bergþóra Halldórsdóttir mannauðsstjóri Borealis Data Center.