Af þeim 4.870 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í þjóðskrá árið 2023 gengu 43% í hjúskap hjá Sýslumönnum, 33,9% hjá Þjóðkirkjunni, 12% hjá öðrum trú- og lífsskoðunarfélögum og 11% erlendis.

Fjöldi og samanburður við árið á undan

Tegund20232022Breyting
Þjóðkirkjan1.6501.735
Sýslumaður2.0951.542
Önnur trú- og lífsskoðunarfélög588649
Erlendis537874
Samtals:4.8704.800

Samanburður milli landshluta

Þegar horft er á samanburð milli landshluta má sjá að miðað við hverja 1000 íbúa gengu flestir íbúar Austurlands í hjúskap á árinu 2023, þar á eftir íbúar Norðurlands vestra og loks íbúar Norðurlands eystra.

Þróun eftir árum

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá. Einstaklingur getur gengið í hjúskap með öðrum einstaklingi sem er ekki með kennitölu í Þjóðskrá og telur þá sá einstaklingur ekki með í tölfræðinni.

Mynd/pixabay