Þessir knáu ungu veiðimenn voru mættir í Hólsána um helgina. Mokveiði hefur verið í ánni sumar og börn og unglingar sem stundað hafa veiði í ánni hafa verið kampakát með aflann og bíða auðvitað spennt eftir næsta veiðisumri. Veiðitímabilinu lauk í gær, 20. september.

Veiði í Hólsá er heimil börnum og unglingum undir 16 ára aldri og er heimilt að veiða með spún, maðk og flugu. Leyfilegur hámarksafli er 3 fiskar á dag og eru veiðimenn hvattir til skrá allan afla í veiðidagbók sem staðsett er við Hólsbrú.

Ungu veiðimennirnir á myndinni eru þeir Benóní Hreinn og Benedikt Frímann.

Myndir og heimild/ Sigríður Ingvarsdóttir
Myndir birtar með samþykki viðkomandi.