Sunnudaginn 26. ágúst eru liðin 90 ár frá vígslu fallegu kirkjunnar okkar í Hrísey.
Af því tilefni verður blásið til hátíðarguðþjónustu á afmælisdeginum kl. 14.00.
Jón Ármann Gíslason prófastur, sr. Hulda Hrönn Helgadóttir fyrrum sóknarprestur Hríseyjar, sr. Oddur Bjarni og sr. Magnús G. Gunnarsson sóknarprestur þjóna – og Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup predikar.
Kórinn syngur undir stjórn nýja organistans Svanbjargar Sverrisdóttur, sem við bjóðum hjartanlega velkomna.
Að guðþjónustu lokinni verður afmæliskaffi og gleði í íþróttahúsinu.
Frétt: Hrísey.is
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir