Árið 2023 fóru sjúkraflutningsmenn frá Slökkviliði Akureyrar í 903 sjúkraflug með 974 sjúklinga en þau voru 891 með 934 sjúklinga árið áður. Um 45% þessara flugferða voru í miklum forgangi (F1 eða F2) og í 7% tilfella var flogið með erlenda ferðamenn.

Sjúkraflutningar eða útköll sjúkrabíla á árinu voru 3.285 en 3.068 árið áður. Um 9% sjúklinga voru erlendir ferðamenn.

Heildarfjöldi útkalla slökkviliðsbíla árið 2023 var 138 en 119 árið 2022.

Slökkvilið Akureyrar sinnir lögbundnum verkefnum eins og slökkvistörfum og eldvarnareftirliti, en einnig sjúkraflutningum fyrir Akureyri og nágrenni en auk þess sinna sjúkraflutningamenn SA öllum sjúklingum sem fluttir eru með sjúkraflugi á Íslandi.