Akureyrarbær hlaut á dögunum styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir verkefnið Fjölskylduþjónusta Norðurlands eystra. Verkefnið miðar að því að efla farsæld barna og fjölskyldna með snemmtækri, samþættri og fjölskyldumiðaðri þjónustu sem byggir á norskri fyrirmynd. Um er að ræða tímabundið stuðningskerfi sem tekur á fjölbreyttum áskorunum í lífi barna og felur m.a. í sér barnasmiðjur, fjölskyldumeðferð og eftirfylgni í allt að 12 mánuði. Styrkurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum.
„Það hefur lengi verið sagt að best sé að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann. Með þessu verkefni, sem velferðarsvið Akureyrarbæjar leiðir í samstarfi við fræðslu- og lýðheilsusvið bæjarins auk tíu annarra sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, er stigið mikilvægt skref í þá átt,“ segir Halldóra Kristín Hauksdóttir, forstöðumaður félagsþjónustunnar hjá Akureyrarbæ.
Verkefnið byggir á reynslu af farsældarþjónustu á 1. og 2. stigi í samræmi við lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. „Í þeirri vinnu hefur komið skýrt í ljós að til að ná markmiðum laganna og auka líkur á árangri þarf úrræði sem tekur betur utan um fjölskylduna í heild. Markmiðið er að grípa snemma inn í og byggja upp styrk og seiglu innan fjölskyldunnar svo hún geti staðið sterkari til framtíðar. Með því að styðja fjölskyldur snemma er ekki aðeins dregið úr líkum á erfiðleikum síðar, heldur er einnig verið að fjárfesta í farsæld og velferð til framtíðar,“ segir Halldóra Kristín.
Fjölskylduþjónusta Norðurlands eystra er hugsað sem 24 mánaða tilraunaverkefni á árunum 2026–2027. Að loknu því tímabili verður árangur metinn og gert átak til að tryggja sjálfbæra innleiðingu á úrræðinu innan almennrar starfsemi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, ef niðurstöður verða jákvæðar.
Að verkefninu standa Akureyrarbær, Norðurþing, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Þingeyjarsveit, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Langanesbyggð, Grýtubakkahreppur og Tjörneshreppur. Sameiginleg sýn sveitarfélaganna er að byggja upp sterka grunnþjónustu sem nær yfir allt svæðið og tryggja að fjölskyldur, óháð búsetu, hafi aðgang að snemmtækum og faglegum stuðningi.



